Trúnaðarmenn FÍN
-
Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir
Trúnaðarmenn FÍN eru fulltrúar félagsins á hverjum vinnustað. Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og félagsins hins vegar.
Hér er að finna lista yfir trúnaðarmenn FÍN á einstökum stofnunum og vinnustöðum. Einnig er hér að finna fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn og aðra áhugasama um kjör og réttindi.
Listi yfir trúnaðarmenn FÍN
Vinnustaður | Nafn | Kosning útrunnin: |
---|---|---|
Actavis Group PTC ehf. |
Emelía Eiríksdóttir | júní 2020 |
Alcoa Fjarðarál sf. | Enginn | |
Alta ehf. | Enginn | |
Alvotech hf. | Enginn | |
Almannavarnadeild ríkislögreglunnar | Enginn | |
Austurbrú | Enginn | |
Biskupsstofa | Enginn | |
Byggðasafn Skagfirðinga | Enginn | |
Bændasamtök Íslands |
Enginn |
|
Efla hf. | Enginn | |
Ferðamálastofa | Enginn | |
Fiskistofa | Enginn | |
Fjarðabyggð | Anna Berg Samúelsdóttir** | sept 2020 |
Framkvæmdasýsla ríkisins |
Örn Baldursson |
okt 2018 |
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | Enginn | |
Genís hf. | Enginn | |
Hafrannsóknarstofnun rannsókna-og ráðgjafarstofnun hafs og vatna |
Sverrir Daníel Halldórsson Jónína H. Ólafsdóttir*/ Keldnaholt |
sept 2018 sept 2018 |
Háskóli Íslands/Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafr. | Enginn | |
Háskóli Íslands/Tilraunastöð í meinafræði að Keldum |
Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir | mars 2020 |
Háskóli Íslands/Jarðvísindastofnun |
Ríkey Kjartansdóttir | apríl 2020 |
Háskóli Íslands | Enginn | |
Háskólinn í Reykjavík ehf. | Enginn | |
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis | Stefán Már Stefánsson* | jan. 2020 |
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis | Enginn | |
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands | Enginn | |
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra |
Enginn | |
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða | Enginn | |
Hjartavernd | Stefán Már Stefánsson* | jan 2020 |
Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal | Enginn | |
Iceprotein ehf. | Stefanía Inga Sigurðardóttir | okt. 2020 |
Isavia ohf. | Enginn | |
ÍSAM ehf. | Enginn | |
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn ehf. | Enginn | |
Íslensk erfðagreining ehf. | Enginn | |
ÍSOR-Íslenskar orkurannsóknir | Ásdís Benediktsdóttir | des 2018 |
KeyNatura ehf. | Enginn | |
Kópavogsbær | Enginn | |
Krabbameinsfélag Íslands |
Enginn | |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Fanney Gísladóttir Ragnhildur Helga Jónsdóttir Hlynur Óskarsson Steinunn Garðarsdóttir |
okt. 2019 |
Landgræðsla ríkisins |
Bryndís Marteinsdóttir Garðar Þorfinnsson |
apríl 2020 júní 2020 |
Landhelgisgæslan | Enginn | |
Landlæknisembættið | Enginn | |
Landmótun sf. | Enginn | |
Landmælingar Íslands | Enginn | |
Landspítali Háskólasjúkrahús/Blóðbankinn |
Freygerður Jóhanna Steinsdóttir |
mars 2019 |
Landspítali Háskólasjúkrahús/Blóðbankinn | Sunna Helgadóttir |
mars 2019 |
Landspítali Háskólasjúkrahús/ónæmisfræðid. |
Una Bjarnadóttir | jan 2019 |
Landspítali Háskólasjúkrahús/veirudeild | Máney Sveinsdóttir | nóv 2019 |
Landspítali Háskólasjúkrahús | Enginn | |
Landvernd | Enginn | |
Landsvirkjun | Enginn | |
Lyf og heilsa hf. | Enginn | |
Lyfjastofnun | Guðbjörg Þ. Örlygsdóttir |
sept. 2018 |
Lýsi hf. | Enginn | |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | Enginn | |
Mannvit | Enginn | |
Matís ohf. | Enginn | |
Matvælastofnun | Enginn | |
Náttúrufræðistofa Kópavogs | Stefán Már Stefánsson* | jan. 2020 |
Náttúrufræðistofnun Ísland |
Enginn | |
Náttúrustofa Austurlands | Hafdís Sturlaugsdóttir* | apríl 2020 |
Náttúrustofa Norðausturlands | Hafdís Sturlaugsdóttir * | apríl 2020 |
Náttúrustofa Norðurlands vestra | Hafdís Sturlaugsdóttir* | apríl 2020 |
Náttúrustofa Suðausturlands | Hafdís Sturlaugsdóttir* | apríl 2020 |
Náttúrustofa Suðurlands | Hafdís Sturlaugsdóttir* | apríl 2020 |
Náttúrustofa Suðvesturlands | Hafdís Sturlaugsdóttir * | apríl 2020 |
Náttúrustofa Vestfjarða |
Hafdís Sturlaugsdóttir* |
apríl 2020 |
Náttúrustofa Vesturlands | Hafdís Sturlaugsdóttir * | apríl 2020 |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands | Sigurlaug María Hreinsdóttir |
mars 2020 |
ORF Líftækni hf. | Enginn | |
Orkustofnun | Enginn | |
Orkuveita Reykjavíkur |
Simon Harald Kluepfel | júní 2020 |
Rannsóknamiðstöð Íslands / RANNÍS | Enginn | |
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. | Enginn | |
Raunvísindastofnun Háskólans | Enginn | |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. | Enginn | |
Reykjavíkurborg |
Björg Helgadóttir (Framkvæmda- og eignasvið) Svava S. Steinarsdóttir (Umhverfis- og skipulagssvið) |
nóv 2019 nóv. 2019 |
Reykjalundur | Enginn | |
Ríkiskaup | Egill Skúlason Langdal | okt 2019 |
Ríkislögreglustjóri |
Enginn | |
Skipulagsstofnun | Ester Anna Ármannsdóttir | okt.2018 |
Skógræktin |
Hraundís Guðmundsdóttir Ólafur Eggertsson |
jan 2019 jan 2019 |
Skógræktarfélag Íslands |
Ragnhildur Freysteinsdóttir * |
júní 2019 |
Stofnfiskur hf. | Enginn | |
Sveitarfélagið Skagafjörður | Enginn | |
Umhverfisstofnun | Sigríður Kristinsdóttir Hólmfríður Þorsteinsdóttir |
júní 2020 júlí 2020 |
Vatnajökulsþjóðgarður | Steinunn Hödd Harðardóttir | júní 2020 |
Veðurstofa Íslands |
Benedikt G. Ófeigsson Kristín Elísa Guðmundsdóttir |
maí 2020 maí 2020 |
Vegagerðin | Enginn | |
Verkís hf. | Enginn | |
Vistor hf. | Enginn | |
VSÓ Ráðgjöf ehf. | Enginn | |
Ölgerðin Egill Skallagríms hf. | Enginn | |
Össur Iceland ehf. | Enginn |
* Sameiginlegir trúnaðarmenn nokkurra stofnana.
**Sameiginlegur trúnaðarmaður fyrir öll stéttarfélög BHM á vinnustaðnum.
Trúnaðarmannakosning
- Val á trúnaðarmanni skal tilkynna vinnuveitanda og stéttarfélagi þegar í stað, með meðfylgjandi eyðublöðum: Eyðublað fyrir trúnaðarmenn á opinberum vinnumarkaði og eyðublað fyrir trúnaðarmenn á almennum vinnumarkaði.
Leyfilegur fjöldi trúnaðarmanna á vinnustað
- Almennur vinnumarkaður
Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er heimilt að kjósa trúnaðarmann á hverri vinnustöð þar sem starfa a.m.k. fimm félagsmenn.
- Opinber vinnumarkaður (sveitarfélög og ríkisstarfsmenn)
Í lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er fjöldaviðmið víðara og er heimilt að kjósa 2 trúnaðarmenn á vinnustöð þar sem 50 eða fleiri starfa. Samkvæmt fyrrnefndum lögum er heimilt að kjósa trúnaðarmenn fyrir félagssvæði eða hluta þess vegna starfsmanna á vinnustöðvum sem ekki uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda. Einstökum stéttarfélögum er heimilt að semja um aðra skipan á vali trúnaðarmanna en að framan greinir. Þá er heimilt að sameinast um trúnaðarmenn ýmist fyrir landssvæði, fleiri en eina stofnun eða milli stéttarfélaga hjá opinberum starfsmönnum.b. Samkvæmt "Samkomulagi um trúnaðarmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og ýmsum sjálfseignarstofnunum" er heimilt á þeim vinnustöðum þar sem starfsmenn vinna samkvæmt mismunandi vinnutímakerfum að kjósa einn trúnaðarmann hið minnsta fyrir hvert vinnutímakerfi.
Kjörtímabil trúnaðarmanna
- Kjörtímabil trúnaðarmanna er 2 ár í senn. Ef trúnaðarmaður er ekki endurkjörinn missir hann eftir 2 ár þá vernd og réttindi sem hann annars nýtur samkvæmt lögum.
Skipun kjörstjórnar
Kjörstjórn sér um allan undirbúning kosningar trúnaðarmanns/trúnaðarmanna
Í mars annað hvert ár sendir félagið út drög að kjörskrá til sitjandi trúnaðarmanna og trúnaðarmenn þurfa að bera þennan lista saman við upplýsingar frá atvinnurekanda. Sé einhverjum ofaukið eða ef einhvern vantar þarf að leiðrétta kjörskrána og senda hana til félagsins. Trúnaðarmenn senda tölvupóst á félagsmenn og óska eftir tilnefningum í kjörstjórn. Bjóði enginn sig fram velur trúnaðarmaður 2 í kjörstjórn. Þar sem ekki er starfandi trúnaðarmaður og starfsmenn vilja kjósa sér trúnaðarmann þá getur félagið tekið að sér undirbúning sem annars fráfarandi trúnaðarmaður sér um.
- Kjörstjórn tilkynnir öllum félagsmönnum að kosning trúnaðarmanns standi fyrir dyrum og hverjir sitji í kjörstjórn.
- Kjörstjórn sendir á alla sem eru á kjörskrá og óskar eftir frambjóðendum og getur þess jafnframt hvort núverandi trúnaðarmaður gefi kost á sér áfram. Gefinn skal hæfilegur frestur, ein vinnuvika, til að tilnefna frambjóðendur. Athugið að starfsmenn í fæðingarorlofi, foreldraorlofi, launalausu leyfi eða í veikindaleyfi eiga einnig að vera á kjörskrá.
- Kjörstjórn tilkynnir félagsmönnum á kjörskrá hverjir séu í framboði og tilgreinir kjördag.
- Kjörstjórn sendir út kjörseðla og setur upp kjörkassa þar sem félagsmenn eiga að afhenda atkvæði sitt. Heimilt er að hafa rafræna kosningu og getur félagið séð um hana ef kjörstjórn óskar þess. Kosning skal í öllum tilvikum vera leynileg. (Ef aðeins einn er í framboði til trúnaðarmanns er hann sjálfkjörinn trúnaðarmaður).
- Kjörstjórn telur atkvæði eftir að kosningu er lokið. Sá/þeir sem fá flest atkvæði teljast löglega kosnir trúnaðarmenn.
- Kjörstjórn tilkynnir atvinnurekanda, félaginu og félagsmönnum um niðurstöðu kosningarinnar.
- Kjörstjórn sér til þess að atvinnurekandi undirriti þar til gert eyðublað og kjörstjórn kemur því eyðublaði til félagsins.
- Trúnaðarmaður telst ekki fá réttarstöðu og lögbundna vernd trúnaðarmanns nema að kosning hafi verið tilkynnt skriflega og sannanlega til vinnuveitanda á umræddu eyðublaði.
- Kosningarétt hafa allir félagsmenn sem eru með fulla aðild að félaginu 1. mars ár hvert.
Ítarefni
Ákvæði um trúnaðarmenn í samningum og lögum
- Samtök atvinnulífsins
- Lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur
- Lög nr. 94/1986 um kjarasamning opinberra starfsmanna
- Samkomulag um trúnaðarmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og ýmissa sjálfseignastofnana, frá 1989
-
Samkomulag um trúnaðarmenn við Samband íslenskra sveitarfélaga, frá 2011
Fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn
- Fræðsluefni BHM um trúnaðarmenn og fyrir trúnaðarmenn . BHM stendur reglulega fyrir fræðsluerindum fyrir trúnaðarmenn og eru þau auglýst á vefsíðu BHM.
- Könnun BHM, BSRB, KÍ og fjármálaráðuneytis um hlutverk og verksvið trúnaðarmanna.